Aðalvalmynd

Auglýsing

Könnun

Hvar áttu heima?

Myndir

SUS-dagur á Blönduósi

03. mars 2008 klukkan 14:28

Stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna kom saman á SUS-degi á Blönduósi, laugardaginn 1. mars.


Átján SUS-arar mættu á svæðið ásamt stjórn Jörundar, félags ungra Sjálfstæðismanna í A-Húnavatnssýslu.


Margt var á dagskrá og má þar m.a. annars nefna heimsókn Adolfs Berndsens, oddvita sveitastjórnar Skagastrandar og nefndarmann í norðvesturnefndinni. Adolf fræddi SUS-ara um hlutverk norðvesturnefndarinnar, atvinnumál og margt fleira sem snertir Austur-Húnavatnssýslu.


SUS-arar kíktu einnig í heimsókn á Heimilisiðnaðarsafnið þar sem vel var tekið á móti þeim. Dagurinn var einnig nýttur í að móta stefnu SUS næsta árið.


Bæjarfulltrúarnir Kári Kárason og Ágúst Þór Bragason kíktu einnig í heimsókn og er ekki hægt að segja annað enn að dagurinn hafi heppnast fullkomlega. Mikil ánægja var með daginn meðal SUS-ara.

Hægt er að skoða fleiri myndir frá SUS-degi hérna vinstramegin á síðunni...


Takk fyrir frábærar mótökur og stórskemmtilega helgi. Þið eigið öll heiður skilið fyrir ferðina og undirbúninginn.

Kveðja frá Kópavogi

Hallgrímur Viðar Arnarson
#1
08. mars 2008 klukkan 15:01
takk fyrir...:)
#2
09. mars 2008 klukkan 13:55

Skrifa athugasemd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Ungir Sjálfstæðismenn