Eurovisionkvöld
Fríar veitingar í boði.18 ára aldurstakmark.
Allir að mæta !!

Félag ungra sjálfstæðismann í A-hún.
Bækur til sölu
Í tilefni af sextugsafmæli Davíðs Oddsonar þann 17. janúar síðastliðinn gaf Samband ungra sjálfstæðismanna út sérstakt rit til heiðurs honum.
Í þessu riti eru ljósmyndir frá sextíu ára ævi hans, fengnar úr myndabókum hans, safni Sjálfstæðisflokksins, blöðum og frá ljósmyndurum og einstaklingum. Þarna eru margar merkilegar myndir, sem fæstar hafa komið áður fyrir almenningssjónir. Einnig eru í bókinni stuttir kaflar úr ræðum og ritum Davíðs.
Bókin kostar 4.490 krónur og er til sölu hjá Jörundi, félagi ungra Sjálfsæðismanna í A-Hún. Upplýsingar um bókina gefur Lee Ann Maginnis í síma 867-3799.
SUS-dagur á Blönduósi
Stjórn Sambands ungra Sjálfstæðismanna kom saman á SUS-degi á Blönduósi, laugardaginn 1. mars.
Átján SUS-arar mættu á svæðið ásamt stjórn Jörundar, félags ungra Sjálfstæðismanna í A-Húnavatnssýslu.
Margt var á dagskrá og má þar m.a. annars nefna heimsókn Adolfs Berndsens, oddvita sveitastjórnar Skagastrandar og nefndarmann í norðvesturnefndinni. Adolf fræddi SUS-ara um hlutverk norðvesturnefndarinnar, atvinnumál og margt fleira sem snertir Austur-Húnavatnssýslu.
SUS-arar kíktu einnig í heimsókn á Heimilisiðnaðarsafnið þar sem vel var tekið á móti þeim. Dagurinn var einnig nýttur í að móta stefnu SUS næsta árið.
Bæjarfulltrúarnir Kári Kárason og Ágúst Þór Bragason kíktu einnig í heimsókn og er ekki hægt að segja annað enn að dagurinn hafi heppnast fullkomlega. Mikil ánægja var með daginn meðal SUS-ara.
Hægt er að skoða fleiri myndir frá SUS-degi hérna vinstramegin á síðunni...

F-listi og D-listi í samstarf
Ólafur F. Magnússon, verður borgarstjóri í nýju meirihluta á fyrri hluta tímabilsins en Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti Sjálfstæðisflokks, verður borgarstjóri síðari hluta tímabilsins

Hulda Birna Vignisdóttir
Davíð Oddsson 60 ára.

Frétt tekin af http://www.xd.is
Hulda Birna Vignisdóttir